laugardagur, maí 07, 2011

Ég stóð í þeirri meiningu að nafnabækur innihéldu lista af nöfnum og jafnvel skýringar á þeim en nafnabókin sem ég tók á bókasafninu innheldur svo miklu meira. Hún hefst á mörgum blaðsíðum af blammeringum á aðra nafnabók og mikilli hneykslun á foreldrum sem gefa börnum sínum ótæk nöfn. Það er samt tekið fram á fyrstu blaðsíðu að höfundur ætli ekki að fjölyrða um þau nöfn sem honum eru ekki að skapi en samt koma svo fimm blaðsíður af því ásamt svo tíu blaðsíðum af því hvernig nöfn eiga að vera. Legði ekki í það þegar hann ætlar virkilega að ræða hlutina;) Þessi bók er algjör gullmoli og mér finnst hún miklu skemmtilegri en hin nafnabókin sem ég tók sem inniheldur bara lista af nöfnum og útskýringar:)
Hér er svo dæmi um nöfn sem höfundur telur fyrir neðan allar hellur (hans orð ekki mín):
Arnar - Birkir - Dagþór - Elvar - Elías- Fannar - Ísar - Jens - Pálmar - Rúnar -Sveinþór
Áróra - Bríet - Díana - Diljá - Ellen - Heba - Íris - Karen - Rut - Sandra - Stella

Hins vegar er nafnið Húnvör á samþykkta listanum hjá höfundi ásamt Eyfuru, Fastnýju og augljóslega Lofthænu.

4 skilaboð:

Linda Rós sagði...

Haha hvaða bók er þetta? Ég held maður verði að blaða í gegnum hana.

Er þetta ekki annars alveg klárt hjá ykkur? Lofthæna Fastný Eyfura Ólafsdóttir. Bókin er alveg með þetta.

Guðrún Helga sagði...

Hún heitir einfaldlega Nafnabókin og er eftir minnir mig Hermann Pálsson. Fæst á öllum betri bókasöfnum :p
Við vorum frekar að hugsa um Eyfura Lofhæna Fastný. Skammstöfunin verður betri þannig.

Linda Rós sagði...

Ahhh já ég sé það núna, skynsöm eruði!

Minnir mig á kennara sem ég var með einu sinni. Ég pældi einhvern tímann í því af hverju miðnafnið væri ekki í skammstöfuninni þegar það voru veikindi og svona, og sprakk svo úr hlátri. Hann heitir Pétur Ingi Guðmundsson.

Guðrún Helga sagði...

haha PIG